Búfjármerki
Búfjármerki fyrir sauðfé, nautgripi og svín frá PBI eru seld í samstarfi við OSid sem er framleiðandi merkjanna í Noregi. Merkin eru endingargóð og auðveld í notkun.
Panta skal merkin á heimasíðunni www.bufe.is en þar er að finna verðlista fyrir vörurnar.
Plastiðjan Bjarg - Iðjulundur hóf samstaf við OSid árið 2007 um sölu á ásetningsmerkjum í sauðfé, árið 2009 var svo tekinn í notkun sérstakur laserprentari sem merkir á merkin.
Merki sem í boði eru:
Micro - merki fyrir lömb
Combi 3000 Mini - ásetningsmerki í sauðfé
Combi E23 - örmerki í ásetningfé
Combi 3000 Small - svínamerki
Combi 3000 Large - Nautgripamerki
Combi E30 - örmerki í nautgripi
TST - DNA merki í nautgripi
Tangir til ísetninga og aukapinnar eru auk þess alltaf til á lager.
Þess má geta að micro lambamerkin má nota til að merkja ýmislegt sem þarfnast varanlegrar merkingar, t.d. veiðarfæri, föt, töskur, verkfæri o.fl.
Flýtimeðferðargjald er 2000+ vsk
Allar breytingar sem gerðar eru, til að mynda hoppandi eða annað kostar sama og flýtimeðferðargjald.